Saltnámur eru uppgufunarset, það er að segja set sem verður til við það að vatn gufar upp og efni sem voru uppleyst í því falla til botns. Saltnámurnar myndast nánar tiltekið við uppgufun úr heitum innhöfum sem og úr stöðuvötnum þar sem uppgufun er jöfn innstreymi í vatnið eða hraðari. Dæmi um hið síðarnefnda eru ...
Það rignir ekki alltaf þegar kaldir og heitir loftmassar mætast. Aftur á móti gerist það mjög oft á Íslandi. Ástæðan er sú að hlýir loftmassar sem berast til Íslands koma að sjálfsögðu af hafi og draga til sín raka á leiðinni til landsins. Þegar hlýr og rakur loftmassinn mætir kaldari loftmassa er hann þvingaður t...
Hætta á snjóflóðum skapast oftast í tengslum við aftakaveður að vetrarlagi með mikilli snjókomu og skafrenningi. Krapaflóð falla einkum þegar hlánar og rignir snögglega niður í snjó, og aurskriður í kjölfar stórrigninga og örrar leysingar. Veðurfar er þannig einn mikilvægasti þátturinn sem segir til um ofanflóðahæ...
Hvorugkynsorðið kram er notað um (óþarfa)varning, verðlausa vöru og þekkist að minnsta kosti frá því seint á 16. öld. Samkvæmt ritmálssafni Orðabókar Háskólans þekkist orðasambandið að eitthvað falli (ekki) í kramið hjá einhverjum frá síðari hluta 18. aldar:Þetta þénar nú allt í yðar kram, minn elskulegi.
Algen...
Orðið þjó er notað um efsta hluta læris, lend, rass og hnappur er meðal annars notað um eitthvað kollótt og kúlulaga. Orðið þjóhnappur um 'rasskinn' þekkist þegar í fornu máli. Síðari liðurinn –hnappur lýsir nánar hvaða hluta lærisins átt er við, það er það kúpta, kúlulaga, rasskinnina.
Hægt er að lesa meira um...
Um bráðabirgðalög segir eftirfarandi í stjórnarskránni:Þegar brýna nauðsyn ber til, getur forsetinn gefið út bráðabirgðalög [er Alþingi er ekki að störfum]. Ekki mega þau þó ríða í bág við stjórnarskrána. Ætíð skulu þau lögð [fyrir Alþingi þegar er það er saman komið á ný].
[Samþykki Alþingi ekki bráðabirgðalög...
Eins og kom fram í niðurlagi svars við spurningunni Ef ég diffra vin minn og tegra hann svo, verður hann þá með fasta C eftir tegrunina? þá laumaði heimspekingurinn svari við þessari spurningu að sumarstarfsmanni Vísindavefsins.
Margir kannast við að gleyma sér öðru hverju. Þetta gerist einna helst þegar fólk e...
Þjórsá er lengsta fljót Íslands en hún rennur um 230 km leið frá upptökum til ósa. Vatnasvið Þjórsár er 7530 ferkílómetrar (km2) og er það næststærsta vatnasvið fljóta á Íslandi á eftir Jökulsá á Fjöllum. Meðalrennsli Þjórsár við Urriðafoss er um 360 rúmmetrar á sekúndu (m3/s).
Þjórsá rennur á mörkum Árnes- og...
Þegar brakar eða smellur í fingrum okkur er það ekki smellur í beinum heldur er talið að hljóðið eigi uppruna sinn í loftbólum í liðvökva. Utan um liðamótin er liðpoki úr bandvef sem tengir beinin og umlykur liðholið sem aðskilur beinaendana, en liðvökvinn er inni í liðholinu. Um þetta er fjalla í svari við spurni...
Í heild hljóðaði spurningin svona:
Hvert er meðaltal snjóflóða í Álftafirði, sérstaklega Súðavíkurhlíð? Er til kort af Íslandi með grafi sem sýnir á hvaða vegum snjóflóð og mögulega önnur algeng slys á umferðasamgöngum af náttúrunnar hendi gerast?
Á árabilinu frá 1996 til 2013 voru skráð 452 snjóflóð á veginn ...
Vísindavefsins krefst þess að algjörs jafnræðis ríki meðal falla landsins. Í fyrirmyndarríkis framtíðarinnar skulu allra falla vera frjálsra undan forsetninga, mannasetninga og kennisetninga.
Í framtíðarinnar verða engra þágufallssjúkra, nefnifallsveikra, þolfallssýktra eða eignarfallsstola. Allra hafa fulls ré...
Ský er safn ótalmargra örsmárra vatnsdropa sem myndast við að vatnsgufa í andrúmsloftinu kólnar og þéttist. Oftast tengist kólnunin uppstreymi, en bæði þrýstingur og hiti loftsins lækkar þegar það lyftist (sjá svar við spurningu um kulda á fjöllum og í háloftum). Uppstreymi á sér stað við ýmsar aðstæður, til dæmis...
Í þessu samhengi ber fyrst að nefna rafstöðukrafta. Flestir hafa séð hvað gerist ef blöðru er nuddað upp við hár manns. Þá er hægt að festa blöðruna upp í loft og hárin sem blöðrunni var nuddað upp að standa upp í loft og hvert út frá öðru. Núningurinn hefur þá framkallað krafta sem láta hárin fjarlægjast hvert an...
Lögboðnir frídagar á Íslandi, samkvæmt lögum um 40 stunda vinnuviku nr. 88/1971, eru „helgidagar þjóðkirkjunnar, sumardagurinn fyrsti, 1. maí og 17. júní, enn fremur aðfangadagur jóla og gamlársdagur frá kl. 13”. Helgidagar þjóðkirkjunnar eru taldir upp í lögum nr. 32/1997 um helgidagafrið og er þeim þar skipt í þ...
Það er óleyst ráðgáta, en böndin beinast að flugvélum.
Í stórum skúraklökkum myndast stundum haglmolar sem geta orðið hátt í kg að þyngd. Svo þungt hagl myndast í sterku uppstreymi þar sem ísmoli getur náð töluverðri þyngd áður en hann fellur til jarðar. Á leið sinni niður rekst hann á fjölda undirkældra vatnsd...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!